Borðbúnaðurinn sem eflaust matarbloggarar heimsins komu á kortið er frá BITZ. Það er nánast alveg sama hvað lendir á diskinum eða í skálinni úr þessari vörulínu, því allt mun lúkka vel og þá ekki bara á uppstilltri mynd.
Í þessum mánuði eigum við von á nýjum vörum í verslanir. Matarstellið er meira og minna það sama í stærð og lögun en með nýjum ferskum litum. Fölbleikur og karrígulur eru á meðal nýju litanna sem við munum sjá hér með haustinu og verður gaman að fylgjast með hver kemur með fyrstu gúrme matarmyndina þar sem maturinn er á nýju stelli.