Hamborgari fyrir þá sem þora

Þessi tvöfaldi hammari er áskorun!
Þessi tvöfaldi hammari er áskorun! mbl.is/SpoonForkBacon

Það er ekki annað hægt en að elska hamborgara, enda fullkomin máltíð sem má matreiða á svo marga vegu. Þessir borgarar eru áskorun fyrir þig! Tvöfaldur með cheddar osti, laukhringjum, beikoni og bbq sósu – það er ekki eftir neinu að bíða.

Hamborgari fyrir þá sem þora (fyrir 4)

  • 4 msk. mjúkt smjör
  • 4 hamborgarabrauð, brioche
  • 500 g nautahakk
  • 8 sneiðar cheddar-ostur
  • 16 sneiðar af beikoni
  • 8-12 laukhringir (og fleiri ef vill til hliðar)
  • BBQ-sósa
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Penslið hamborgarabrauðin léttilega með mjúku smjöri.
  2. Formið nautahakkið í borgara, saltið og piprið allar hliðar og setjið á grillið.
  3. Þegar borgararnir eru við það að vera tilbúnir, leggið þá cheddar-ostsneiðar á kjötið og leyfið ostinum að bráðna á meðan hamborgarabrauðin eru rétt hituð með smjörhliðina sem vísar niður.
  4. Setjið borgara á brauðbotn með bbq-sósu, beikon, aftur borgara, laukhringi, meiri bb- sósu og lokið hamborgaranum með brauði.
mbl.is/SpoonForkBacon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert