Við erum öll að reyna halda aðeins í sumarið sem kom aðeins of seint í ár, en kom þó blessunarlega í kortér. Þessi réttur er alveg í þeim anda og er tilvalinn sem forréttur. Ef hugurinn er ekki hjá rækjunum þá má auðveldlega skipta þeim út fyrir annan fisk eða kjúkling.
Grillaðar pestó-rækjur með ananassalsa (forréttur fyrir 4)
- 500 g rækjur
- 4-5 msk. grænt pestó
- 8 grillspjót
Salsa:
- ½ ananas
- 1 rauðlaukur
- 1 rauð papríka
- 1 búnt kóríander
- ½ - 1 rautt chili
- Safi úr einni lime
- 1 msk. dökk sesamolía
- Salt
Aðferð:
- Veltið rækjunum upp úr pestó og setjið upp á grillspjót. Grillið rækjurnar í 2 mínútur á hvorri hlið.
- Skerið ananasinn í litla teninga og setjið í skál. Fínsaxið rauðlauk, papriku, kóríander og chili og blandið saman við ananasinn. Pressið lime-safann yfir og bætið við sesamolíu. Smakkið til með salti.
- Berið rækjurnar fram með ananassalsa.