Þessar kjötbollur ættu að tryggja heimilisfrið og almenna hamingju í nokkuð góða stund enda eru þær himneskar á bragðið. Reyndar má alveg sleppa kjötinu ef út í það er farið. Rétturinn er jafn góður fyrir vikið.
Pasta með rjómasósu, rósakáli og kjötbollum
Handa fjórum
Bollurnar
Sósan
Aðferð:
Byrjið á að blanda saman öllum innihaldsefnum í bollurnar, mótið þær síðan í þá stærð sem þið óskið og steikið í nokkrum skeiðum af ólífuolíu við meðalhita á pönnu sem má setja í ofn. Þegar þær eru orðnar fallega brúnar á öllum hliðum færið þær af pönnunni í stóra skál.
Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
Steikið rósakálið við meðalhita á pönnunni, bætið við olíu ef þarf, snúið sárinu niður. Þegar kálið er fallega brúnt og stökkt á þeirri hlið hrærið í því, færið í skálina með kjötbollunum þegar það er gegneldað.
Bætið smjörinu á pönnuna. Setjið laukinn, hvítlaukinn, sveppina og salvíuna út í og brúnið létt.
Bætið hveitinu út í og hrærið vel. Hellið víninu saman við og haldið áfram að hræra. Bætið loks rjómanum út í og hrærið þar til sósan er orðin samfelld og kekkjalaus. Kryddið með salti og pipar.
Hellið bollunum, kálinu og pastanu á pönnuna og blandið öllu varlega saman. Dreifið mozzarella-ostinum yfir.
Stingið pönnunni í ofn og hitið þar til osturinn er bráðinn.