Það er ekki annað hægt en að staldra við uppskrift sem þessa. Þeir sem elska humar og avocado ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara. Rétturinn kallar á stórt glas af margarítu með á kantinum og að njóta suðrænnar stemningar í eldhúsinu.
Humar-guacamole með stökkum flögum
- 120 g humar
- 2 msk. smjör, ósaltað
- 4 avocado
- ¼ bolli saxað kóríander, og aðeins meira til að skreyta réttinn
- 3 msk. hakkaður laukur
- 1 lime
- ¼ tsk. salt
- ¼ tsk. pipar
- Jalapeno skorið í sneiðar
- Cherry-tómatar skornir í sneiðar
- Tortilla-flögur
Aðferð:
- Hreinsið humarinn og þurrkið vel. Hitið pönnu á meðal hita og bætið smjöri á pönnuna. Steikið humarinn á pönnu í 4-5 mínútur og snúið við á milli. Takið humarinn af pönnunni og hakkið einn af hölunum niður.
- Setjið avocado, kóríander, lauk, safa úr lime, salt og pipar í skál og maukið allt mjög vel saman. Sumir vilja hafa guacamole mjög mjúkt á meðan aðrir vilja það pínu kekkjótt – þitt er valið. Smakkið til með meiri lime-safa, salti og pipar.
- Setjið guacamole í fallega skál og stráið hakkaða humarhalanum yfir. Stráið cherry-tómötum, jalapeno-sneiðum og ferskum kóríander yfir (ef vill). Og því næst kemur restin af humrinum ofan á allt saman.
- Njótið af bestu list með stökkum nachos-flögum.