Hvernig er hægt að baka svona brjálæðislega fallegar kökur? Fyrir Ástralann Raymond, betur þekktan sem Ray Ray, er þetta leikur einn. Hann er sjálflærður bakari með mastersgráðu í bókhaldi og gefur öðrum bökurum og listafólki ekkert eftir.
Ray Ray hefur birst í fjölda tímarita og sjónvarpsþátta, eins staðið í sérpöntunum fyrir óteljandi hótel og tískuhús á við Burberry´s og Bvlgari. Fyrir áhugasama heldur hann úti síðunni lickedbyrayray.com og rymondtn á Instagram, þar sem dást má að skrautlegum desertum og láta sig dreyma.