Bollur í karrý þekkjast víða á heimilum og eru oft í miklu uppáhaldi hjá stórum sem smáum. Hér er búið að bæta eplum og kókos í réttinn sem gerir hann ferskan og spennandi.
Bollur í karrý með eplum og kókosmjöli (fyrir 4)
- 500 g hakk að eigin vali
- 2 tsk salt
- 1 laukur
- 1 egg
- 1 dl haframjöl
- Pipar
- 1½ dl vatn
- 1 msk kókosolía til steikingar
- 3 rauðlaukar
- 3 epli
- 1 msk karrý
- 4 dl kókosmjólk
Karrý hrísgrjón:
- 4 dl hrísgrjón
- 2 tsk karry
- 1 grænmetisteningur
Annað:
- 1½ dl kókosmjöl
- Handfylli ferskt kóríander
Aðferð:
- Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum og blandið karrý og grænmetisteningnum út í vatnið.
- Blandið salti saman við hakkið. Skerið laukinn smátt og blandið við hakkið ásamt eggi, haframjöli og pipar. Hrærið vatninu út í smám saman og leyfið hakkblöndunni að hvíla í kæli í 10 mínútur. Setjið jafnvel aðeins meira vatn ef þörf er á.
- Formið hakkið í litlar bollur og steikið upp úr kókosolíu á pönnu.
- Skerið rauðlaukinn í báta. Skolið eplin og skerið í teninga.
- Ristið rauðlauk og eplum upp úr karrý á pönnu. Bætið við kókosmjólk og kjötbollunum og leyfið þessu að malla í 5 mínútur. Bætið við smá vatni ef þörf er á og smakkið til með salti og pipar.
- Berið fram með karrý hrísgrjónum og stráið kókosmjöli og kóríander yfir.