Blómkál er svo gott eitt og sér og hvað þá ristað í ofni. Ekta snakk sem geymist í 4-5 daga í kæli og alltaf hægt að grípa í. Við mælum með að prófa.
Glettilega gott ristað blómkál
- 1 blómkálshaus
- 2 msk. ólífuolía
- ½ tsk. sjávarsalt
- 1 msk. karrý (má sleppa)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°. Hreinsið og þurrkið blómkálið. Takið öll græn blöð af kálinu og skerið í litla munnbita.
- Setjið í skál og bætið við olíu, salti og karrý ef vill. Blandið saman og nuddið jafnvel hráefnunum betur á kálið.
- Setjið kálið á bökunarplötu á bökunarpappír og bakið í 25-40 mínútur þar til vel gullinbrúnt, munið að hræra aðeins í þegar tíminn er hálfnaður svo að kálið bakist jafnt á alla kanta.
- Takið úr ofninum og njótið! Smakkast vel eitt og sér eða jafnvel með sítrónu, tahini, þurrkuðum ávöxtum (t.d. rúsínur eða trönuber) eða kóríander. Það má vel hita kálið upp á pönnu við meðalhita eða í ofni.