Stundum kallar kroppurinn á eitthvað hollt – hann heimtar eitthvað annað en rjómasósu. Þá er tilvalið að fá sér pizzu með grænkáli og ricotta-osti, sem er líka svona glettilega gott.
Girnilega holla pizzan
- 2 heilhveiti pizzadeig
- Ólífuolía
- 250 g cherry tómatar
- 300 g grænkál
- 1 msk. ólífuolía
- Salt og pipar
- Chiliflögur á hnífsoddi
- 250 g ricotta
Ofan á:
Aðferð:
- Hitið ofninn á 200°.
- Leggið pizzadeigin á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Skolið tómatana og skerið í báta.
- Steikið tómatana upp úr olíu í nokkrar mínútur á heitri pönnu. Slökkvið undir og bætið við salti, pipar, chiliflögum, rifnum sítrónuberki og grænkáli. Blandið vel saman.
- Smyrjið pizzabotnana með ricotta og dreifið blöndunni af pönnunni jafnt á pizzadeigin.
- Bakið við 200° í 15 mínútur þar til botninn er orðinn stökkur.
- Berið fram með grófrifnum parmesan og fínrifnum sítrónuberki. Upplagt er að gera einnig tómatasalat til að njóta með.