Við getum alltaf á okkur pasta bætt. Sérstaklega þegar rétt sem þennan tekur enga stund að græja og bragðast nánast eins og á næsta veitingastað, ef ekki betur.
15 mínútna pastarétturinn
- 500 g tagliatelle
- 500 g blandaðir sveppir
- 4 skallottlaukar, saxaðir
- 4 stór hvítlauksrif
- ½ dl ólífuolía
- 200 g spínat
- Salt og pipar
- Geitaostur
Aðferð:
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum
- Skerið stærstu sveppina í minni bita. Steikið sveppi, lauk og hvítlauk í olíu í 4-5 mínútur. Bætið við spínati og soðnu pastanu og blandið vel saman.
- Smakkið til með salti og pipar og skerið geitaost í skífur og stráið yfir.