Krap er eitt af því sem allir krakkar elska og ósjaldan sem það gefur gott „brain-freeze“ í leiðinni. Þetta er upplagt að prófa með krökkunum á heimilinu, og gott er að byrja á þessu deginum áður þó að það megi vel framkvæma sama morgun og bera á krapið fram.
Heimagert krap
- Vatnsmelóna
- 225 g jarðaber, skerið toppinn af
- 2 lime
Aðferð:
- Skerið rauða hluta melónunnar í bita og fjarlægið alla steina. Setjið helminginn í poka og inn í frysti yfir nótt eða í nokkra klukkutíma.
- Takið melónuna úr frysti og maukið saman við hinn melónuhlutann, jarðarberin og safann úr lime-ávöxtunum þar til allt er orðið mjúkt og „slushy“.
- Hellið í glös og drekkið með röri.