Það má alltaf bæta sig í pastaréttunum – finna upp á nýjum samsetningum þegar hluti af fjölskyldunni kvartar yfir að fá „alltaf það sama“ í matinn. Hér bjóðum við til leiks eina ofureinfalda en afar bragðgóða uppskrift að blómkálspasta með beikoni.
Auðvelt blómkálspasta (fyrir 4)
- 1 blómkálshaus
- 2 msk. ólífuolía
- 3 stór hvítlauksrif
- ½ tsk. chiliflögur, þurrkaðar
- 3 msk. tómatpúrra
- 1 dl vatn
- 250 g pasta
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 50 g rúsínur
- 200 g beikonteningar
- Steinselja
- 50 g furuhnetur
Aðferð:
- Skerið blómkálið í litla bita og steikið upp úr olíu á pönnu í 3-4 mínútur. Bætið út í fínt söxuðum hvítlauk og chiliflögum og steikið áfram í 2-3 mínútur. Því næst kemur tómatpúrran og vatn og lokið sett á pönnuna. Leyfið blómkálinu að sjóða í 10 mínútur eða þar til það er orðið mjúkt.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum.
- Bætið hökkuðum tómmötum og rúsínum út í blómkálsblönduna á pönnunni og sjóðið áfram undir lokinu í 5-6 mínútur þar til sósan þykknar.
- Steikið beikonið á þurri pönnu og hakkið niður steinseljuna.
- Blandið furuhnetum, steinselju og pastanu saman við blómkálsblönduna og dreifið beikoninu yfir.