Hér gefur að líta föstudagspítsu sem ætti engan að svíkja enda er hún eins ítölsk og þær geta framast orðið. Fullkomin á föstudegi sem þessum...
Pestó pizza
- pizzadeig
- Sacla pestó
- Mosarella ostur
- Sacla tómatar með ólífum
- ferskt basil
- parmesan ostur
- Hvítlauksolía
Hvítlauksolía:
- 1dl ólífuolía
- Pressuð hvítlauksrif (2-4 stk)
Aðferð:
- Stillið ofninn á 220ºC
- Smyrjið pestói á útflatt pizzadeigið.
- Skerið mosarella ostinn í sneiðar og dreifið yfir pizzuna ásamt tómötum og ólífum, bakið inn í ofni þar til pizzabotninn er bakaður í gegn (mismunandi eftir því hvaða deig er notað)
- Dreifið fersku basil yfir pizzuna ásamt parmesan osti og hvítlauksolíu