Þetta er krúttlegasta og ferskasta sushi-uppskrift sem við höfum séð lengi og tekur enga stund að græja. Eflaust einhverjir krakkar sem myndu vilja gæða sér á þessu því hér getur maður leikið sér með hvaða hráefni sem er í fyllinguna. Svo fram með prjónana og smökkum á gúrku-sushi með hummus.
Gúrku-sushi með hummus
- 1 stór gúrka
- Hummus
- Fetaostur, mulinn
- Ólífur, saxaðar
- Cherry-tómatar, saxaðir
- Ferskt dill
- Sítróna
Aðferð:
- Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar eftir henni endilangri með grænmetisskrælara. Leggið sneiðarnar á eldhúsbréf til að þurrka þær.
- Leggið tvær langar gúrkusneiðar ofan á hvor aðra. Smyrjið þunnu lagi af hummus og stráið smátt skornum tómötum, fetaosti og ólífum ofan á.
- Rúllið þétt upp og stingið dillstöng ofan í hverja rúllu. Kreistið sítrónusafa yfir ef vill og berið fram.