Þessi uppskrit er með þeim einfaldari sem þið rekist á. Parmesan-hjúpurinn er svo eitthvað sem slær alls staðar í gegn og gefur réttinum þetta extra vá!
Lífsbætandi lax á 30 mínútum
1 stórt laxaflak, roðflett
sjávarsalt
ferskur pipar
4 msk. bráðið smjör
1/4 bolli nýrifinn parmesan-ostur
2 hvítlauksgeirar, maukaðir
2 msk. fersk steinselja, söxuð
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður. Setjið álpappír á ofngrind og smyrjið. Setjið laxaflakið á grindina og kryddið með salti og pipar.
Blandið saman í lítilli skál smjöri, parmesan, hvítlauk og steinselju. Hjúpið laxinn með blöndunni og bakið uns laxinn er tilbúinn eða í 25 mínútur eða svo.
Stillið ofninn á grill og grillið fiskinn síðustu tvær mínúturnar eða svo til að hjúpurinn verði stökkur.