Þegar þig dreymir um „comfort food“ þá tölum við um hina einu sönnu útgáfu af makkarónum og osti eða mac‘n‘cheese – rétt eins og Ameríkaninn elskar. Hvað er betra á blúsuðum degi en að fá sér pastarétt með haugi af osti.
Klassíski pastarétturinn með haugi af osti (mac‘n‘cheese)
- 7 dl mjólk
- 1 skallotlaukur
- 1 stórt hvítlauksrif
- 2 lárviðarlauf
- 350 g makkarónur
- 50 g smjör
- 50 g hveiti
- 175 g rifinn cheddar-ostur
- 1 msk. sinnep
- 50 g brauðkrumlur
- 50 g parmesan
Aðferð:
- Setjið mjólk í pott. Skerið skallotlauk og hvítlauk í fjóra báta og setjið út í pottinn ásamt lárviðarlaufunum.
- Hitið upp að suðu og takið þá pottinn af hellunni. Leyfið mjólkurblöndunni að standa í 30 mínútur og sigtið hana þá yfir í skál eða könnu.
- Sjóðið makkarónurnar í söltuðu vatni.
- Bræðið smjörið í potti og bætið hveiti út í. Hrærið saman í litla bollu og bætið þá mjólkinni smátt og smátt út í og pískið saman þar til útkoman verður að sósu.
- Hrærið rifnum cheddar-osti og sinnepi út í sósuna og smakkið til með salti og pipar.
- Hitið ofninn á 200°.
- Setjið makkarónurnar í eldfast mót og hellið sósunni yfir.
- Raspið brauðið fínt og dreifið yfir réttinn ásamt parmesan-osti.
- Setjið í miðjuna á ofni í 15-20 mínútur og bakið þar til rétturinn verður gylltur.