Múffur metta – múffur gleðja – múffur eru auðveldar að baka. Við bjóðum hér upp á girnilega uppskrift að eplamúffum með hnetum og kókos. Þetta er allt sem þú þarft inn í líf þitt þessa dagana.
Bragðgóðar eplamúffur með kókos (12 stk.)
- 150 g heilhveiti, sigtað
- 150 g hveiti
- 125 g kókossykur
- 3 tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. sjávarsalt
- 1 msk. vanillusykur
- 1 msk. kanill
- 1 tsk. engifer
- 4 msk. hunang
- 1 egg
- 2,5 dl mjólk
- ¾ dl hnetuolía
- 2 stór eða 3 lítil epli, hökkuð
- 50 g heslihnetuflögur
Annað:
- 1 msk. kókossykur
- 1 msk. heslihnetukjarnar
Aðferð:
- Stillið ofninn á 175°. Blandið öllum þurrefnum saman í skál.
- Takið fram aðra skál og pískið saman egg, hunang, mjólk og olíu. Blandið saman við þurrefnin ásamt eplum og hnetum.
- Skiptið deiginu jafnt í 12 muffinsform og skreytið með kókossykri og hnetum. Bakið í 20-25 mínútur þar til kökurnar verða gylltar að lit.