Það kannast eflaust margir við það að finnast þeir alltaf vera með það sama í matinn. Hver vikan á eftir annari er eins og sífelld endurtekning. Við þráum að prófa nýjar uppskriftir sem taka þó ekki allan heimsins tíma og gefa manni nýtt bragð í bankann. Hér er stórgóður réttur sem verður að prófast með brokkolí og ljúffengri flankasteik.
Fáránlega góð föstudagssteik
- ½ bolli kjúklingasoð
- ⅓ bolli sojasósa
- ¼ bolli púðursykur
- 2 hvítlauksrif, smátt skorin
- Safi úr einni lime
- 500 g flanksteik
- 1 msk. sesamolía
- 1 brokkolíhaus
- Sjávarsalt
- Pipar
- Sesamfræ
- Hrísgrjón
Aðferð:
- Blandið saman í skál kjúklingasoði, sojasósu, púðursykri, hvítlauk og safa úr lime.
- Hitið stóra pönnu. Nuddið kjötinu upp úr olíu og setjið á pönnuna í 3 mínútur á hvorri hlið. Takið þá af pönnunni og skerið í sneiðar.
- Setjið blönduna úr skálinni út á pönnuna og lækkið aðeins undir hitanum. Bætið brokkolí út á pönnuna og því næst kjötinu – leyfið að malla í sósunni. Saltið og piprið. Leyfið réttinum að eldast á pönnunni í 8-10 mínútur eða þar til brokkolíið og kjötið er tilbúið.
- Stráið sesamfræjum yfir og berið fram með hrísgrjónum.