Já takk! Það er ekkert sem stoppar okkur í að smakka þessar blondínur og viljum við biðja um ískalt mjólkurglas með. Hér eru hnetur og súkkulaði í aðalhlutverki og spila það svo sannarlega vel.
Blondínur með súkkulaði og hnetum
- 1 bolli smjör, bráðið
- 2 bollar púðursykur
- 2 tsk vanilludropoar
- 2 stór egg
- 2 bollar hveiti
- ½ bolli valhnetur, mjög fínt saxaðar
- 1 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- ⅛ tsk matarsódi
- 1 bolli saxaðar valhnetur og ristaðar
- 1 bolli súkkulaði
Aðferð:
- Hitið ofninn á 180°. Smyrjið bökunarpappír og setjið í bökunarmót, sirka í stærðinni 30x20 cm.
- Takið fram stóra skál. Blandið saman smjöri, púðursykri og vanilludropum. Bætið því næst eggjum, einu í einu, og haldið áfram að píska saman. Takið fram aðra skál og blandið saman hveiti, mjög fínt söxuðum valhnetunum (mulningur), lyftidufti, matarsóda og salti og bætið út í smjörblönduna. Bætið síðan valhnetubitum og gróf söxuðu súkkulaðibitum út í blönduna.
- Hellið deiginu í bökunarmótið og bakið í 30-35 mínútur – gott er að stinga tannstöngli í deigið til að tékka hvort það sé tilbúið. Leyfið kökunni alveg að kólna áður en hún er skorin niður í bita.