Hollari útgáfan af nachos rétti – alls ekkert síðri en eitthvað annað.
mbl.is/Bbcgoodfood.com
Hér bjóðum við upp á hollu útgáfuna af nachos-rétti. Þennan mætti kannski reyna að plata ofan í krakkana eða bjóða upp á í næsta saumaklúbbi.
Sætkartöflu nachos
- 3 litlar sætar kartöflur (um 600 g)
- 1 msk. rapsolía
- 400 g dós svartar baunir
- 100 g salsa-sósa
- 40 g cheddar-ostur
- 1 avocado
- 1 lime
- kóriander
- ½ rauðlaukur, smátt skorinn
Aðferð:
- Stingið í kartöflurnar og setjið inn í örbylgjuofn í 10 mínútur (eða á 180° á blæstri inn í ofn í 40 mínútur).
- Hitið ofninn í 200° á blæstri. Skerið kartöflurnar til helminga og skafið gróflega helminginn úr og geymið (hægt að setja í frysti og nota seinna). Skerið næst kartöflurnar í langa báta og nuddið upp úr olíu. Raðið kartöflubátunum á bökunarplötu og bakið í 15 mínútur þar til þær verða „krispí“.
- Dreifið baununum þá yfir ásamt salsa og osti og setjið aftur inn í ofn í 10-15 mínútur, þar til osturinn hefur bráðnað.
- Skerið avocado niður og kreistið safa úr lime yfir. Hellið avocado yfir réttinn ásamt coríander og rauðlauk.