Þetta er svona réttur sem þú færð ekki leið á. Hver elskar ekki pasta, smjörsteikta hvítlaukstómata, ferska basiliku og haug af nýrifnum parmesan? Það má svo auðveldlega bjóða fólki í mat með svona einfaldleika – það þarf ekki alltaf að vera steikarhlaðborð á boðstólnum.
Smjörsteiktir tómatar á spaghettífjalli (fyrir 3-4)
- 5 msk. ósaltað smjör
- 2 hvítlauksrif, kramin léttilega með hýðinu á
- 2 stönglar af fersku timían
- 650-700 g cherry-tómatar
- Spaghetti
- Ólífuolía
- Salt og pipar
- Fersk basilika
- Parmesan-ostur
Aðferð:
- Hitið ofninn í 190°.
- Dreifið smjöri, hvítlauk (í heilu lagi með hýðinu á) og timían í eldfast mót og cherrý-tómatana þar ofan á. Saltið og piprið og setjið inn í ofn í 10 mínútur. Takið úr ofninum og þá ætti smjörið að vera bráðið – takið smjörið upp með skeið og hellið yfir tómatana (baðið þá upp úr smjörinu). Setjið því næst aftur inn í ofn í aðrar 20 mínútur, þar til tómatarnir hafa bakast.
- Sjóðið spaghettí samkvæmt leiðbeiningum í saltvatni. Geymdu um ½ bolla af pastavatninu þegar þú hellir vatninu af.
- Takið tómatana úr ofninum og fjarlægið rósmaríngreinarnar. Takið hýðið af hvítlauknum og merjið. Bætið hvílauknum aftur út í tómatana og veltið þeim upp úr hvítlauknum ásamt öllum safanum sem er í eldfasta mótinu.
- Hitið ólífuolíu á pönnu á miðlungshita. Setjið einn þriðja af tómötunum ásamt safanum á pönnuna.
- Bætið pastanu út á pönnuna og veltið því í örfáar mínútur. Saltið og piprið. Hellið pastavatninu sem þið tókuð til hliðar á pönnuna og leyfið því að sjóða upp.
- Setjið spaghettí á stóran disk og hellið restinni af tómötunum og safanum yfir. Toppið með ferskri basiliku og nóg af nýrifnum parmesan.