Við getum ekki sagt „nei takk“ við blöndu sem þessari. Þegar rjómaostur, mangó chutney og avocado mætast ofan á volgu nan-brauði þá bjóðum við góðan daginn – enda er þetta hinn fullkomni morgunverður að okkar skapi.
Hinn fullkomni morgunverður (fyrir 2)
- 1 msk. olífuolía
- 2 egg
- 2 lítil nan-brauð
- 4 msk. rjómaostur
- 2 msk. mangó chutney
- 1 avocado
- ½ lime
- 1 grænt chili
- Ferskt kóríander
Aðferð:
- Hitið ofninn á blæstri á 180°. Hitið olíu á pönnu og steikið eggið og á meðan hitið þá nan-brauðin inni í ofni.
- Smyrjið nan-brauðin með rjómaosti og dreifið mango chutney yfir. Setjið egg ofan á hvort sitt brauðið og toppið með avocado, safa úr lime, smátt söxuðu chili og kóríander.
Fullkomin samsetning á nanbrauði til að hefja daginn.
mbl.is/bbcgoodfood.com