Við höldum áfram að deila með ykkur einföldum og ljúffengum smákökum til að baka á aðventunni. Þessar eru algjör draumur og henta stórvel með góðum kaffibolla eða heitu kakói.
Ljúffengar svissneskar hnetukökur (35-40 stk.)
- 2 egg
- 150 g sykur
- 150 g hveiti
- 150 g heslihnetur
Aðferð:
- Pískið egg og sykur saman. Bætið hveiti og hnetum út í.
- Hellið deiginu í sandkökuform og bakið við 150° í 50-60 mínútur.
- Pakkið kökunni inn í rakt viskastykki og látið standa í kæli fram á næsta dag.
- Skerið kökuna í þunnar skífur og bakið í ofni við 225° í 5-6 mínútur (fylgist með kökunum á meðan).
- Þegar kökurnar hafa kólnað er hægt að setja þær í kökudós.