Orkuríka eggjakakan er hér – með kartöflum og lauk. Einn af þessum réttum sem hægt er að „henda í“ þegar ekkert er til í ísskápnum, sem er ansi oft, og er alltaf jafn góður.
Langbesta eggjakakan með kartöflum
- 2 laukar
- 500 g soðnar kartöflur
- 2 dl ólífuolía til að steikja upp úr
- Salt og pipar
- 6 egg
- Steinselja
- 1 dl ólífuolía
Aðferð:
- Hakkið laukinn smátt og skerið kartöflurnar í grófa bita. Hitið ólífuolíu á pönnu.
- Setjið kartöflur og lauk á pönnuna og steikið þar til þær byrja að brúnast, 6-8 mínútur. Veltið kartöflunum jafnt og þétt á pönnunni þannig að þær brúnist á öllum hliðum. Kryddið með salti og pipar.
- Pískið eggin ásamt steinseljunni. Setjið kartöflur og lauk yfir í eggjablönduna. Hellið ólífuolíunni af pönnunni og þurrkið hana. Hitið nýja olíu á pönnunni.
- Hellið eggjblöndunni á pönnuna og leyfið að malla í 10-12 mínútur þar til endarnir eru orðnir tilbúnir.
- Leggið disk yfir pönnuna og veltið pönnunni yfir diskinn. Rennið því næst eggjakökunni varlega yfir á pönnuna svo hún bakist einnig á hinni hliðinni, í sirka 5-6 mínútur. Slökkvið þá undir.
- Leyfið eggja-kartöflukökunni að kólna aðeins áður en hún er skorin í sneiðar.