Segðu skilið við árið með frískandi kampavíns-mojito við hönd. Hér bjóðum við upp á léttari útgáfuna af klassískum mojito sem þú munt elska. Hvort sem þú sötrar drykkinn yfir ávarpi háttsettra embættismanna í sjónvarpinu eða sem fordrykk fyrir matinn mælum við með því að prófa þennan.
Sötrað yfir kampavíns-mojito (fyrir 6)
- ½ tsk. strásykur
- 1 cl ljóst romm, dökkt romm eða cacacha að eigin vali
- Ferskur limesafi
- 6-7 myntublöð per glas
- Hálfþurrt kampavín eða Cava
Aðferð:
- Setjið ½ tsk. sykur í hvert glas ásamt 1 cl af rommi og smávegis af ferskum limesafa.
- Setjið myntublöðin í glösin og hrærið í með langri skeið. Merjið aðeins myntublöðin.
- Látið standa í hálftíma þar til sykurinn hefur leyst upp og myntan er byrjuð að gefa frá sér bragð.
- Þegar gestirnir koma fyllir þú glösin upp með kampavíni og við lofum að þeir eiga eftir að taka vel á móti.