Við þurfum á þessu salati að halda í fyrsta mánuði ársins. Og jafnvel restina af árinu ef út í það er farið. Hér bjóðum við upp á kjúklingasalat með bragðgóðri sinnepsdressingu.
Salatið sem þú þarfnast í janúar (fyrir 2)
- 200 g kínóa
- 1 msk. ólífuolía
- 1 msk. sítrónusafi
- 1 skallottlaukur
- 200 g kjúklingabringur
- Salt og pipar
- ¼ hvítkál, gjarnan rautt
- 1 avocado
- 12 cherry-tómatar
- Ferskt timían
Sinnepsdressing:
- 1 msk. sinnep
- 2 msk. ólífuolía
- 1 msk. edik
- 1 tsk. hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
- Sjóðið kínóa samkvæmt leiðbeiningum.
- Blandið kínóa saman við olíu, sítrónusafa og fínt saxaðan skallottlauk, og leyfið því að kólna.
- Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið upp úr olíu á pönnu, saltið og piprið. Leyfið kjúklingnum að kólna.
- Skerið kálið fínt og avocado í litla bita. Skerið tómatana til helminga.
- Skiptið hráefnunum til helminga á tvo diska eða krukkur (upplagt til að taka með sem nesti).
- Sinnepsdressing: Hrærið öll hráefnin saman og hellið yfir þegar njóta á salatsins.