Dekraðu við þig! Eitt af áramótaheitunum gæti snúist um að gera vel við sig, allt árið um kring. Hér er holla útgáfan af dekri sem kroppurinn mun elska. Chia-jógúrt með granateplum, grape og pistasíuhnetum.
Chia-jógúrt með granatepli og pistasíum (fyrir 4)
- 1 lítri af hreinni jógúrt (eða feitri grískri jógúrt)
- 2 msk. chiafræ
- 2 rauð greip
- 2 msk. pistasíuhnetur
- 1 granatepli
- Smávegis af hunangi
Aðferð:
- Hellið jógúrtinni í skál áður en þú skammtar hana, þá verður hún kremkenndari.
- Skerið hýðið af greipinu og skerið greipið sjálft í þunnar sneiðar.
- Hakkið pistasíuhneturnar.
- Hrærið jógúrtina með chiafræjum og skiptið niður í 4 glös ásamt greipi og pistasíuhnetum.
- Skerið granateplið til helminga og kreistið safa og belgi yfir jógúrtina. Dreypið örlitlu af hunangi yfir og berið fram.