Snilldin ein sem þessi uppskrift er! Pizza á priki er fullkomin í næsta barnaafmæli eða sem snarl yfir sjónvarpsglápi sem allir í fjölskyldunni munu elska. Hér er upplagt að prófa sig áfram með önnur hráefni eins og skinku, papriku, zucchini og bragðmikla osta.
Pizza á priki
- Pizzadeig
- Pepperóní
- ¼ ósaltað smjör
- ¾ tsk. hvítlaukssalt
- 1 msk. fersk basilika, smátt söxuð
- 1 bolli rifinn ostur
- ¼ bolli parmesan-ostur
- 1 bolli pizza sósa
- Trépinnar
Aðferð:
- Bleytið trépinnana í vatni í sirka 30 mínútur eða notið stálpinna.
- Hitið ofninn í 200° og setjið álpappír á bökunarplötu og spreyið með bökunarspreyi.
- Fletjið pizzadeigið út. Blandið saman bræddu smjöri, hvítlaukssalti, parmesan og basiliku og penslið pizzadeigið með blöndunni.
- Skerið deigið í 2,5 cm þykkar ræmur.
- Setjið pepperóní á ræmurnar með góðu millibili og byrjið að vefja upp á pinnana þannig að pepperóníið stingist út á milli.
- Setjið pinnana á bökunarplötuna og smyrjið aftur með hvítlauksblöndunni. Bakið í 10-12 mínútur þar til deigið er orðið gyllt að lit.
- Takið úr ofninum og dreifið rifnum osti yfir og leyfið honum að bráðna. Látið aftur inn í ofn í nokkrar mínútur ef þörf er á að osturinn bráðni meira. Berið fram með pizzasósu.