Gott, hollt, girnilegt og einfalt – er hægt að biðja um eitthvað meira? Hér er uppskrift að kjúklingabollum, fullum af orku og frábærum til að taka með í nesti, þá bæði fyrir börn og fullorðna.
Orkubollur sem börnin elska (sirka 18 stk.)
- 400 g kjúklingahakk
- 1 rauðlaukur
- 1 gulrót
- ½ papríka, rauð
- Spínat, handfylli
- 1 egg
- 2 msk. hveiti
- Salt og pipar (mælum með salti frá Nicolas Vahé með parmesan og basilikum)
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnum saman.
- Mótið í bollur og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu. Penslið bollurnar með ólífuolíu.
- Steikið í miðjum ofni á 180° á blæstri í 25-30 mínútur.
Grænmetið sem til þarf.
mbl.is/Sidsel Jensine Kristensen_madiblokken.blogspot.com
Öllu blandað saman og mótað í litlar bollur.
mbl.is/Sidsel Jensine Kristensen_madiblokken.blogspot.com
mbl.is/Sidsel Jensine Kristensen_madiblokken.blogspot.com