Margir þekkja „Rocky Road“ sem er aldagömul uppskrift að gómsætu konfekti með sögu. Þessi uppskrift er tilvalið sunnudagsföndur ef svo má segja, og fullkomið með kaffinu.
Rocky Road á sér langa sögu og talið er að uppskriftin komi upprunalega frá Ástralíu þó að það sé ekki staðfest – en eitt er víst að þetta bragðgóða konfekt varð vinsælt í kringum 1900. Í Ástralíu setja menn rauð kokteilber í blönduna og í Bandaríkjunum setja menn kex. Englendingar fara aðra leið með sykurpúðum og hnetum sem við ætlum að kynna hér.
Hið eina sanna Rocky Road
- 100 g macadamia-hnetur
- 50 g pistasíuhnetur
- 100 g þurrkaðar apríkósur
- 75 g litlir sykurpúðar
- 400 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Leggið pökunarpappír í form (20x30 cm) og passið að pappírinn nái upp fyrir kantinn.
- Hakkið hnetur og apríkósur í minni bita. Blandið sykurpúðum, hnetum og apríkósum í skál en takið smávegis af hökkuðum apríkósum og hnetum frá til að skreyta á eftir.
- Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hellið súkkulaðinu yfir hnetublönduna og blandið vel saman.
- Hellið í form og pressið léttilega niður með sleif og skreytið.
- Kælið í tvo tíma eða þar til súkkulaðið hefur harðnað.
- Skerið með heitum hnífi eða brjótið í hæfilega stóra bita.