Hvað ætlar þú að bjóða ástinni þinni upp á að drekka á Valentínusardaginn? Við mælum með þessum ískalda og frískandi drykk sem mun fá hjartað til að slá örar, því góður kokteill er alltaf betri en súkkulaði.
Rómantískasti drykkur ársins
- 240 ml granateplasafi
- 90 ml strawberry vodka
- 90 ml Chambord Black Rasperry
- 2 litlir þurrísmolar
- 2 jarðarber, skorin hjartalaga
Aðferð:
- Hellið granateplasafanum, vodka og chambord í hristiglas og hristið vel saman.
- Setjið einn þurrísmola í hvort glasið (notið jafnvel töng í verkið).
- Hellið blöndunni yfir þurrísinn.
- Skreytið með hjartalöguðum jarðarberjum.
- Bíðið með að drekka drykkinn í 5-10 mínútur þar til þurrísinn hefur gufað upp (njótið bara sýningarinnar á meðan).
Njótið sýningarinnar á meðan þurrísinn leikur sitt hlutverk.
mbl.is/Thecookierookie.com
mbl.is/Thecookierookie.com