Já takk, við erum svo til í þennan rétt. Enn einn fjölskylduvæni rétturinn þar sem slegist er um síðasta bitann. Þessi réttur er svo frábær og hann getur líka kallast grænmetisréttur, svo lengi sem þú sleppir kjúklingnum í uppskriftinni.
Það er mexíkóskt í matinn
- 2 bollar salsa verde (má líka nota rauða salsa-sósu)
- 2 bollar kjúklingur
- 2 sætar kartöflur, bakaðar og skornar í litla bita
- 1 dós gular baunir
- 1 bolli svartar baunir
- ½ bolli rauðlaukur, smátt skorinn
- 3 msk. smátt saxað kóríander
- 1 tsk. chili-pipar
- ½ tsk. hvítlaukssalt
- Salt og pipar
- 2 bollar ostur, gjarnan cheddar eða blandaður
- Tortillakökur
- 1 avocado
- ½ bolli tómatar saxaðir
- Sýrður rjómi
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°.
- Setjið einn bolla af salsa í botninn á eldföstu móti.
- Setjið sætar kartöflur (bakaðar), tilbúinn kjúkling, svartar baunir, rauðlauk, gular baunir, kóríander og krydd saman í stóra skál og saltið og piprið.
- Leggið tortilla-köku á bretti og setjið um ¼ bolla af sætkartöflu-blöndunni þar ofan á fyrir miðju. Dreifið smá osti yfir. Rúllið tortillunni upp og endurtakið með næstu tortillu. Raðið öllum tortilla-kökunum í eldfasta mótið og snúið „samskeytahliðinni“ niður.
- Hellið restinni af salsa yfir kökurnar og stráið osti yfir allt saman. Setjið í ofn í 20 mínútur.
- Skreytið með avocado, söxuðum tómötum, kóríander og sýrðum rjóma.
Öllu blandað saman í skál áður en sett er á kökurnar.
mbl.is/Thecookierookie.com
mbl.is/Thecookierookie.com