Við bjóðum þessa girnilegu beikonvöfðu aspasstöngla velkomna hér inn. Stökkur og bragðgóður forréttur eða morgunmatur, eða sem kvöldsnakk – það má borða þetta öllum stundum ef við mættum ráða. Hér mælum við með að setja beikonvafða aspasinn á ofngrind til að hitinn leiki betur allan hringinn um snakkið.
mbl.is/Eazypeazymealz.com
Beikonvafinn aspas fyrir ketó kroppa
- 24 aspasstönglar
- 12 beikonsneiðar
- 1 tsk. ólífuolía
- ½ tsk. hvítlaukssalt
- ½ tsk. svartur pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°.
- Skerið endann af aspasnum og dreypið ólífuolíu yfir. Stráið hvítlaukssalti og svörtum pipar yfir.
- Skerið beikonsneiðarnar til helminga, þannig að þú fáir tvær langar ræmur úr einni. Vefjið einni beikonræmu utan um aspasinn og setjið á ofngrind ofan á ofnplötu.
- Bakið í 10 mínútur og notið töng til að snúa þeim við í ofninum. Bakið áfram í 10-15 mínútur eða þar til beikonið er alveg að verða stökkt. Setjið þá ofninn á grillstillingu í 1-2 mínútur þar til aspasinn fær þetta stökka yfirbragð.
mbl.is/Eazypeazymealz.com