Þú trúir ekki hvað þú ert að fara smakka hérna. Þennan rétt er búið að prófa og sanna, og hann virkar. Pastaréttur í einum potti með brokkolí og leynihráefni sem er grísk jógúrt, en það sjáum við ekki oft í pastauppskriftum. Hér er jógúrtin að gera stórkostlega hluti.
Pastaréttur í einum potti
fyrir 4
- 2 brokkolíhausar
- 350 g pasta
- 4½ bolli vatn
- ½ bolli grísk jógúrt
- 2 msk. ólífuolía
- 4 hvítlauksrif, marin
- 1 msk. kosher-salt
- ¼ tsk. svartur pipar
- Rauðar piparflögur (má sleppa)
- ½ bolli nýrifinn parmesan eða annar sambærilegur ostur, plús aðeins meira til að bera fram
Aðferð:
- Setjið brokkolí, pasta, vatn, jógúrt, ólífuolíu, hvílauk, salt, pipar, rauðar piparflögur (ef vill) í stóran pott eða stóra pönnu og hrærið í til að blanda vel saman. Látið sjóða.
- Hrærið í reglulega til að pastað festist ekki við botninn og sjóðið þar til pastað er tilbúið samkvæmt leiðbeiningum og vatnið hefur að mestu gufað upp.
- Fjarlægið pottinn af hellunni og bætið ostinum út í. Berið fram í grunnum skálum og stráið meiri osti yfir.
Í þessum rétti er leynihráefnið grísk jógúrt.
Joe Lingeman