Við köllum á alla súkkulaðiaðdáendur þarna úti! Þið sem fáið vatn í munninn við það eitt að hugsa um súkkulaði ættuð að sleppa öllu frá ykkur og vinda ykkur í bakstur á þessari bombu sem við erum að bjóða upp á.
Þreföld súkkulaðibomba
- 200 g smjör
- 200 g 70% súkkulaði
- 100 g hveiti
- 3 egg
- 250 g sykur
- ½ tsk. salt
- 150 g mjólkursúkkulaði
- 150 g hvítt súkkulaði
- Bökunarform, 20x30 cm
Skraut:
- 25 g dökkt súkkulaði
- 25 g mjólkursúkkulaði
- 25 g hvítt súkkulaði
Aðferð:
- Hitið ofninn í 175°. Bræðið smjör og dökkt súkkulaði saman í potti.
- Pískið hveiti, egg, sykur og salt saman í skál þar til loftkennt. Hellið súkkulaðiblöndunni út í blönduna og blandið varlega saman með sleif. Hakkið mjólkursúkkulaðið og hvíta súkkulaðið gróflega og bætið út í deigið.
- Klæðið bökunarform með bökunarpappír og hellið deiginu í formið. Bakið í ofni í 25 mínútur. Ágætt er að leyfa kökunni að kólna þar til daginn eftir – hún verður bara betri á að hafa staðið yfir nótt í ísskáp.
- Bræðið dökkt, mjólkur- og hvítt súkkulaði saman yfir vatnsbaði í potti. Dreypið súkkulaðinu yfir kökuna áður en hún er skorin í bita.