Við vitum að bakaðar kartöflur eru frábært meðlæti en megum við kynna fyrir ykkur sætar kartöflur sem taka allt annað á hærra plan? Hér er svakalega girnileg og góð uppskrift að bökuðum sætkartöflum með fersku kjúklingasalati.
Bakaðar og sætar með salati
- 4 stórar sætar kartöflur
- 125 g klettasalat
Kjúklingasalat:
- 500 g kjúklingabringur
- 1 laukur
- 2 stór hvítlauksrif
- 2 lárviðarlauf
- 1 tsk. piparkorn, heil
- 2 tsk. salt
- ½ l vatn
- 50 g sólblómafræ
- Handfylli fersk basilika
- 2½ dl ricotta
- 3 msk. grænt pestó
- ½ sítróna
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°. Skolið kartöflurnar og pikkið í þær með gaffli. Setjið kartöflurnar á bökunarpappír á bökunarplötu og bakið í 45-60 mínútur, þar til þær eru orðnar mjúkar.
- Kjúklingasalat: Skerið hverja bringu í 3 hluta. Skerið lauk og hvítlauk gróflega og setjið í pott ásamt lárviðarlaufum, piparkornum, salti og vatni og leyfið suðunni að koma upp. Leggið kjúklinginn í pottinn og látið sjóða í 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn. Takið kjúklinginn úr pottinum og látið kólna. Rífið kjötið með tveim göfflum. Ristið sólblómafræin á þurri pönnu og hakkið basilikum fínt. Blandið tætta kjúklingnum við sólblómafræin, basilikum, ricotta, grænt pestó, sítrónusafa og rifinn börk af sítrónu. Smakkið til með salti og pipar.
- Skerið í sætu kartöflurnar og fyllið með kjúklingasalatinu. Berið fram með klettasalati og ferskri basiliku.