Haldið þið ekki að Mexíkódrottningin sé komin með nýja uppskrift en fyrir þá sem eru ekki alveg með á hreinu hvað verið er að vísa í þá er það að sjálfsögðu sú staðreynd að tvö ár í röð hefur Eva Laufey átt vinsælustu uppskriftina á Matarvefnum og geri aðrir betur.
Hér er hún með svokallað tortillaskálar með fyllingu sem hún segir að hafi slegið í gegn á heimilinu, ekki síst hjá tveggja ára dóttur hennar. Þetta getur sumsé ekki klikkað. Verði ykur að góðu.
Tortillaskálar Evu Laufeyjar
fyrir fjóra
- 1 msk. olía
- 600 g kalkúnahakk
- 1 laukur
- 1/4 rautt chili
- 2 hvítlauksrif
- 1 rauð paprika
- 5 sveppir
- Salt og pipar
- 1 tsk. paprika
- 1 tsk. rósmarín
- 1 tsk. kummin
- 1 tsk. þúsund og ein nótt kryddblanda (ég veit ekki hvort hún fáist í öllum verslunum en þið notið bara góða kryddblöndu í stað hennar ef hún er ekki lengur seld)
- 1 krukka maukaðir tómatar
- 2 msk. salsasósa
- 2 msk. hreinn rjómaostur
- 1/2 kjúklingateningur
- Handfylli smátt saxaður kóríander
- Tortillavefjur
Ofan á:
- 150 g rifinn ostur
- Sýrður rjómi
- Lárpera
- Kirsuberjatómatar
- Vorlaukur
- Kóríander
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Mótið tortillakökurnar með því að nota bollakökuform, þrýstið kökunum ofan í formið og mótið lítinn vasa. Setjið inn í ofn við 180°C í 15 mínútur eða þar til kökurnar eru gullinbrúnar.
- Hitið olíu á pönnu. Saxið niður lauk, hvítlauk og chili og steikið þar til mjúkt í gegn.
- Bætið kalkúnahakkinu út á pönnuna og kryddið með þeim kryddum sem talin eru upp hér að ofan.
- Skerið niður papriku, sveppi og kóríander. Bætið út á hakkblönduna og eldið þar til kalkúnahakkið er fulleldað.
- Bætið maukuðum tómötum, rjómaosti og salsasósu út á. Kryddið vel með salti og pipar og bætið hálfum kjúklingateningi saman við.
- Leyfið hakkblöndunni að malla við vægan hita í tíu mínútur.
- Á meðan skerið þið niður lárperu, kóríander, kirsuberjatómata, vorlauk og blandið saman í skál. Kryddið með salti og hellið smá ólífuolíu yfir grænmetið.
- Þegar hakkblandan hefur mallað í tíu mínútur skiptið þið henni niður í tortillakökurnar og setjið rifinn ost yfir.
- Inn í ofn við 180°C í tíu mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og gullinbrúnn.
Berið fram með sýrðum rjóma, fersku salsa og enn meiru af kóríander…já já það fær enginn nóg af honum.