Erum við mögulega að gleyma þessari frábæru útgáfu af pizzu? Calzone er öðruvísi upplifun á hinni einföldu flatböku þegar hráefnin eru falin undir deiginu. Í þessu tilviki eru engar reglur varðandi hráefnið, þú setur þitt calzone saman með öllu því sem hugurinn girnist.
Helgarpizzan er gúrme calzone
- Bökunarsprey
- Pizzadeig
- Hveiti
- Pizzasósa
- Ricotta
- Pepperóni
- Rifinn ostur
- Ólífuolía
- Kosher-salt
Aðferð:
- Hitið ofninn í 260° og úðið tvær bökunarplötur með bökunarspreyi.
- Stráið hveiti á borðið, skiptið pizzadeiginu niður og fletjið út.
- Setjið pizzasósu fyrir miðju deigsins og dreifið léttilega úr. Setjið ricotta, pepperóni og rifinn ost ofan á sósuna.
- Brjótið deigið saman til helminga og klemmið endana saman. Smyrjið með ólífuolíu og stráið salti yfir. Gott er að skera í toppinn á 2-3 stöðum til að loft nái að leika um.
- Bakið í ofni þar til gyllt og osturinn bráðnaður, um 20 mínútur. Gott er að pensla aftur með olíu eftir helminginn af tímanum í ofninum.
- Látið kólna í nokkrar mínútur áður en borið er fram.