Lokaútkoman í uppskriftum sem þessum á það til að vera dálítið þurr í sér. Hér aftur á móti eru þessir stökku múslí-bitar jafn góðir, ef ekki betri en þeir sem þú kaupir úti í búð. Svo frábært að eiga slíkt góðgæti og grípa með á morgnana út í amstur dagsins.
Stökkar múslí-stangir – betri en búðarkeyptar
- 1 msk. múskóvadósykur eða púðursykur
- ¼ ltr. niðursoðin mjólk (condensed milk – um 350 g)
- 175 g þurrkaðar apríkósur
- 150 g haframjöl
- 50 g graskerskjarnar
- 50 g möndlur
- 2 hrískexkökur
Aðferð:
- Hakkið apríkósur og möndlur. Hrærið múskóvadósykurinn saman við niðursoðnu mjólkina ásamt apríkósum, haframjöli, graskerskjörnum og hökkuðum möndlum.
- Brjótið hrískökurnar niður og sáldrið í blönduna.
- Setjið bökunarpappír í eldfast mót, 20x30 cm, og hellið deiginu í mótið.
- Hitið ofninn í 175° og bakið í 30 mínútur. Þegar múslíið hefur kólnað er það skorið út í sirka 15 bita.