Það slær ekkert út ilminn af nýbökuðum bollum, smurðar með góðu lagi af smjöri. Þessar haframjölsbollur með hunangi munu metta marga maga og eru frábærar í nesti. Bollur eru bestar með osti, sultu, ferskri papríku eða öðru því sem til er í ísskápnum hverju sinni – þitt er valið.
Hollustubollur með hunangi
- 50 g ger
- 5 dl ilvolgt vatn
- 2 tsk. salt
- 2 msk. ólífuolía
- 1 msk. hunang
- ½ dl hafraklíð
- 5 dl haframjöl
- 5 dl hveiti
- ½ dl mjólk til að pensla
- ½ dl haframjöl til að skreyta
Aðferð:
- Leysið gerið upp í volgu vatni. Setjið salt, ólífuolíu, hunang, haframjöl út í og blandið saman í nokkrar mínútur.
- Bætið hveiti út í smátt og smátt þar til deigið byrjar að losna frá köntunum. Leggið hreint viskastykki yfir og leyfið deiginu að hefast í 1 klukkustund.
- Stillið ofninn á 225°C. Skiptið deiginu í 20 bita og mótið í bollur. Leggið á bökunarpappír á bökunarplötu. Leggið viskastykki yfir og leyfið að hefast í 30 mínútur.
- Penslið bollurnar með mjólk og dreifið haframjöli yfir. Bakið í miðjum ofni í 10-12 mínútur þar til þær eru orðnar fallegar á lit. Leyfið þeim aðeins að kólna áður en bornar fram.