Aníta Ösp Ingólfsdóttir, yfirmatreiðslumaður á RÍÓ Reykjavík, er mikill meistari í að galdra fram gómsæta rétti, en meðal þess sem RÍÓ Reykjavík býður upp á er gott úrval af vegan- og ketóréttum.
Að sögn Anítu mælist þessi fjölbreytni vel fyrir og nú er svo komið að boðið er upp á sérleg vegankvöld á miðvikudögum en „þá bý ég alltaf til auka veganrétti í tilefni dagsins,“ segir Aníta. „Eins er alltaf ketóréttur vikunnar í hádeginu og svo er ég líka með þriggja eða fimm rétta ketóseðil á kvöldin sem hefur notið mikilla vinsælda.“
Ketó quesadilla
Uppskrift fyrir 4
Tortillan
- 8 egg
- 1 dl rjómi
- Salt og pipar
Fyllingin
- 400 g nautahakk
- 200 g sveppir
- 1 stór laukur
- 200 g rifinn ostur
- 1 stk. paprika
Chili-majónes
- 300 g Hellmanns majónes
- 2 msk. sriracha-sósa
- Nokkrir dropar sítrónusafi
- Salt
Á toppinn
- Rifinn parmesan. Byrjið á því að þeyta saman eggin, nýmjólkina, saltið og piparinn.
- Hitið pönnu á lágum hita og bræðið smá smjör á henni, þá er ¼ af eggjunum hellt út á pönnuna og velt um á pönnunni til að ná blöndunni sem þynnstri (eins og þegar maður gerir íslenskar pönnukökur).
Fyllingin
- Nautahakkið steikt á pönnu og kryddað til, sett til hliðar í skál, þá eru sveppirnir og laukurinn steiktir og ostinum bætt út á í lokin sem og hakkinu. Tekið af hitanum og ostinum leyft að bráðna.
Chili-majónes
- Öllu hrært saman og smakkað til með salti. Hægt er að bæta við eða minnka chili-sósu magnið eftir smekk hvers og eins.
- Chili-majónes sett á hálfa tortilluna, síðan fyllingin og skorin fersk paprika, tortillunni lokað og parmesanostur rifinn á toppinn. Sett inn í ofn á 200°C í 3-5 mínútur eða þar til parmesanosturinn er bráðnaður.