Hér erum við með lágkolvetnaveislumat af bestu gerð. Hægt er að borða þennan rétt bæði spari og hversdags og það eru einungis fjörgur hráefni í henni að meðlætinu meðtöldu.
Þessi snilldaruppskrift kemur úr smiðju Einn, tveir og elda sem klikka ekki frekar en fyrri daginn.
LKL Ofnbökuð svínalund með parmesan-kúrbít fyrir tvo
- 400 g svínalund
- 2 tsk. svínakjötskryddblanda (t.d. oregano, timian, hvítlauksduft, broddkúmen)
- 1 stk. kúrbítur
- 30 g fínrifinn parmesan
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C og stillið á undir- og yfirhita. Stingið göt hér og þar á svínalundina með gaffli og nuddið hana vel með ólífuolíu. Færið hana síðan í eldfast mót og kryddið með kryddblöndu. Bakið svínalundina í 20-30 mínútur eða þar til hún hefur náð ljósbrúnum lit í gegn.
- Skerið kúrbítinn í tvennt og síðan í litla báta. Þerrið bátana og setjið í skál ásamt dass af ólífuolíu, parmesan-ostinum og salti og pipar eftir smekk. Blandið þessu vel saman og færið síðan í eldfast mót. Bakið kúrbítsbátana í 15-20 mínútur eða þar til þeir eru orðnir fallega gylltir og stökkir.
- Leyfið svínakjötinu að hvíla í 1-2 mínútur þegar það er tekið úr ofninum. Skerið það síðan í fallegar sneiðar og berið fram ásamt kúrbítsbátunum og góðri kaldri sósu, t.d. hvítlaukssósu. Njótið vel!