Það gerist ekki betra en akkúrat þetta lasagne sem þú munt vilja gera vikulega hér eftir. Sveppir og eggaldin leynast í uppskriftinni, en þeir sem kjósa eitthvað annað en þetta grænmeti geta einfaldlega skipt út með öðrum hráefnum sem þeim líst betur á.
Grænmetis-lasagne með sveppum og eggaldin (fyrir 4)
- 400 g sveppir
- 1 laukur
- 2 stór hvítlauksrif
- ½ eggaldinn
- 400 g tómatar í dós
- ½ tsk. rifið múskat
- 4 dl matvinnslurjómi
- 200 g mozarellakúla
- 10 lasagneplötur
- 2 msk. smjör
- Salt og pipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 225°C.
- Skerið sveppina í sneiðar. Saxið lauk og hvítlauk og skerið eggaldin í þunnar skífur.
- Steikið laukinn upp úr smjöri í potti og bætið sveppum og eggaldin út í. Hrærið vel í grænmetinu og bætið út í tómötum og múskati. Látið sjóða í 10 mínútur.
- Takið fram annan pott og setjið matvinnslurjómann þar út í og hitið að suðu. Skerið mozarella í skífur og geymið nokkrar til að setja ofan á réttinn á eftir. Setjið ostinn í pottinn og látið bráðna saman við rjómann. Smakkið til með salti og pipar.
- Smyrjið tómatblöndunni á botninn á eldföstu móti og leggið lasagneplötur þar ofan á, því næst tómatblöndu, rjómablöndu og aftur lasagnaplötur til skiptis. Endið með rjómablöndunni og leggið mozarella skífur ofan á.
- Bakið í ofni í 30 mínútur og berið fram með salati.