Það tekur mun minni tíma en við höldum að þrífa ísskápinn – geymslustaðinn fyrir allan þann mat sem við látum ofan í okkur. Við eigum það til að mikla þetta verk fyrir okkur þegar það tekur ekki nema 15 mínútur í framkvæmd. Við mælum með að þrífa matarleifar og annað sem sullast til í ísskápnum jafnóðum og þurrka reglulega úr hillum. Hér eru nokkur ráð um hvernig við losum okkur við bakteríur úr mikilvægasta skáp heimilisins.
- Byrjið á því að tæma ísskápinn. Farið yfir hvaða matvörur eru runnar út á dagsetningu og hendið. Setjið restina af matvörunum í bala og stillið út fyrir ef veður leyfir.
- Slökkvið á ísskápnum. Það er möguleiki á að klaki eða annað muni bráðna og þá er gott að vera viðbúinn með ílát eða gamlar tuskur.
- Takið allar hillur, plötur og skúffur út og þvoið vel með heitu vatni og sápu. Það má einnig blanda smávegis af Rodalon í vatnið ef ísskápurinn var farinn að lykta.
- Mikilvægt er að hreinsa holuna/síuna sem er aftast í ísskápnum, þar sem vatn lekur niður í. Þar gætu matarleifar hafa læðst ofan í sem er gott að hreinsa áður en fer að mygla.
- Þurrkið vel af öllum hliðum skápsins og gúmmílistum því þar eiga bakteríur til að grassera.
- Þrífið einnig skápinn að utan og munið eftir handfanginu sem reyndar má þrífa í það minnsta tvisvar í viku eða oftar eftir þörfum. Strjúkið líka ofan á skápnum því þar liggur alveg klárlega gott lag af ryki. Síðan má ryksuga skápinn að aftan.
- Setjið að lokum skúffur og hillur aftur inn og lokið ísskápnum. Þegar þú hefur þurrkað ísskápinn vel að innan og utan máttu stinga honum aftur í samband og raða matvörunum aftur inn.
Þessi ísskápur er til fyrirmyndar. Takið eftir loftþéttu nestisboxunum sem notuð eru til geymslu á matvöru, það minnkar óþef.
mbl.is/pinterest