Við erum að tala um auðveldustu útfærslu á sultuðum rauðlauk sem smakkast eins og sælgæti á hamborgara sem og annan mat. Þú þarft ekkert að hugsa þig um – bara draga fram krukku og baða rauðlaukinn upp úr ediki og nokkrum piparkornum. Ef þú þorir í djarfara bragð má vel setja engifer eða kanilstöng út í til að krydda blönduna aðeins meira.
Sultaður rauðlaukur er algjört sælgæti
- 150 g vatn
- 150 g edik
- 75 g sykur
- 10 piparkorn
- 4 rauðlaukar
Aðferð:
- Setjið lítinn pott á borðvigt og vigtið vatn, edik og sykur þar ofan í. Setjið líka piparkornin í pottinn.
- Hitið blönduna og hrærið þar til sykurinn hefur blandast vel saman við.
- Takið pottinn af og leyfið blöndunni að kólna.
- Skerið rauðlaukinn í þunnar skífur eða aðeins þykkari báta, allt eftir smekk.
- Setjið laukinn í krukku með loki. Hellið edikblöndunni yfir og veltið krukkunni aðeins. Setjið blönduna inn í ísskáp í það minnsta 3 tíma áður en þú notar hann, helst yfir sólarhring.