Ef að allir réttir myndu vera þess gerðir að maður gæti útbúið þá deginum áður, þá væri lífið stundum léttara. Hér ertu að fá pönnukökur í kvöldmat – framreiddar í eldföstu móti með spínati og ricotta. Uppskriftin er áætluð fyrir sex eða fjóra mjög svanga.
Pönnukökur í fati með spínati og ricotta (fyrir 6)
Pönnukökudeig:
- 250 g hveiti
- 2 egg
- 2 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 2½ dl mjólk
- 2 dl vatn
- Olía til steikingar
Fylling og sósa:
- 500 g spínat
- 250 g ricotta
- 2 egg
- 100 g rifinn parmesan
- Salt og pipar
- 250 g hakkaðir tómatar
- 3 msk. ólífuolía
- 2 msk. balsamik
- 2 msk. oregano krydd
- Salt og pipar
- 125 g mozzarella
Aðferð:
- Setjið hveiti í skál ásamt eggjum, olíu, salti, pipar, mjólk og vatni. Piskið vel saman og látið hvíla í 30 mínútur.
- Hitið olíu á pönnu og bakið pönnukökurnar þar til gylltar á hvorri hlið fyrir sig.
- Hitið spínatið á pönnu og pressið vökvann frá. Setjið í blandara og hakkð smátt. Blandið spínatinu saman við ricotta, egg og rifinn parmesan. Saltið og piprið.
- Hitið ofninn á 180°C. Dreyfið spínatfyllingunni á pönnukökurnar og rúllið þeim saman. Leggið í eldfast mót.
- Hrærið hökkuðu tómatana saman við 2 msk af ólífuolíu, balsamik og 1 msk af oregano. Saltið og piprið.
- Dreyfið tómatblöndunni yfir pönnukökurnar og stráið mozzarella yfir. Kryddið með 1 msk af oregano og dreypið örlítið af ólífuolíu yfir.