Það fer ekkert á milli mála að páskarnir eru handan við hornið. Matvöruverslanir eru að fyllast af súkkulaðieggjum og við fáum nettan valkvíða fyrir valinu í ár. En páskarnir er svo notalegur tími og þá er um að gera að gera vel við sig með súkkulaði og nýbökuðum bollum sem falla alltaf vel í kramið hjá mannskapnum.
Hot cross buns eru brauðbollur með rúsínum og þekkt páskahefð á Englandi. Bollurnar eru borðaðar á föstudeginum langa sem útskýrir krossinn á bollunum en hefur ekkert með bragðið að gera.
Vinsælustu bollur Breta – Hot cross buns
- 3,5 dl mjólk
- 125 g sykur
- 50 g smjör
- 50 g ger
- 500 g hveiti
- 1 egg
- 2 tsk. brúnkökukrydd
- 2 tsk. kanill
- 100 g rúsínur
- 1 dl hveiti
- 0,5 dl vatn
Gljái:
- 125 g sykur
- 1 dl vatn
- 2 tsk. gelatín
Aðferð:
- Hellið mjólk, sykri og smjöri saman í pott og hitið án þess að það sjóði. Leysið gerið upp í mjólkurblöndunni.
- Hellið hveiti í stóra skál ásamt eggi, kryddum og rúsínum.
- Hellið mjólkurblöndunni yfir og hnoðið þar til deigið er mjúkt og slétt. Leyfið deiginu að hefast í 1 tíma eða þar til það hefur tvöfaldað sig.
- Skiptið deiginu í 12 bita og rúllið upp sem bollum. Leggið þær á bökunarpappír á plötu, og hafið þær þétt saman eða þannig að þær rétt snerti hver aðra. Leyfið bollunum að hefast í sirka hálftíma í viðbót.
- Hitið ofninn í 200°. Hrærið hveiti og vatni saman svo það klístri. Hellið blöndunni í sprautupoka og teiknið kross á bollurnar.