Þessi uppskrift er fyrir alla þá sem elska avocado, kjúkling og ost. Hér er upplagt að nota afganga af kúkling og rífa niður, eða kaupa tilbúinn út í búð. Rétturinn er borinn fram með jógúrtsósu sem er best eftir að hafa staðið í ísskáp í nokkra tíma. Það er ekkert í þessari uppskrift sem erfitt er að elska.
Bakað avocado með kjúklinga- ostasalati
- 5 avocado
- 1½ bolli rifinn kjúklingur
- ½ bolli cherry tómatar, skornir
- ⅔ bolli rifinn cheddar ostur
- 2 vorlaukar, skornir í þunnar sneiðar
- 3 msk. ferskt kóríander, smátt saxað
- ½ tsk. chili krydd
- ½ tsk. papríkukrydd
- ½ tsk. hvítlaukskrydd
- ¼ tsk. cumin
- Salt og pipar
Jógurtsósa:
- ½ bolli hrein grísk jógúrt
- 1½ msk. sriracha
- 1 lime
Aðferð:
- Hitið ofninn á 190°C.
- Skerið avocado til helminga og fjarlægið steininn. Skerið innan úr einum heilum avocado og setjið í skál. Hér má skafa örlítið úr hinum helmingunum og bæta við í skálina, þá myndast líka meira pláss fyrir kjúklinginn á eftir. Alls ekki nauðsynlegt en má vel gera.
- Bætið rifnum kjúkling út í sömu skál og avocadoinn ásamt ⅓ bolla af osti, tómötum, vorlauk, kóríander, chili-, papríku- og hvítlaukskryddi, cumin, salti og pipar. Blandið vel saman og passið að avocadoinn sé vel maukaður við til að halda kjúklingnum saman.
- Dragið fram ísskeið og setjið kjúklingablönduna ofan á hvern og einn avocado helming. Dreifið restinni af ostinum yfir.
- Bakið í 15-20 mínútur þar til kjúklingurinn er heitur í gegn og osturinn bráðnaður.
- Jógúrtsósa: Pískið saman jógúrt, sriracha og safa úr lime. Þetta má gera fyrirfram og láta standa í kæli í nokkra tíma áður en hún fer á réttinn.
- Takið úr ofninum og dreypið jógúrtsósunni yfir. Stráið meira af kóríander yfir berið fram.