Við erum mögulega að sjá hér uppskrift að sænskum kjötbollum sem er betri en þú færð í IKEA, en þar þykja bollurnar vera afar ljúffengar. Samkvæmt Ingvar Kamprad, stofnanda verslunarinnar á enginn að versla á tóman maga og þannig hófst kjötbolluævintýrið í þeirri verslun.
Hér færðu dásamlega uppskrift að ekta sænskum kjötbollum sem fjölskyldan mun elska. Þú getur borið þær fram með kartöflumús og sultu á kantinum eða jafnvel eggjanúðlum, hrísgrjónum og gufusoðnu grænmeti – allt í boði.
Sænskar bollur betri en í IKEA (fyrir 6-8)
Kjötbollur:
- 350 g nautahakk
- 350 g svínahakk
- ¾ bolli brauðrasp
- ¼ bolli mjólk
- 1 stórt egg
- 1 stór laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk. kosher-salt
- ¼ tsk. múskat
- ⅛ tsk. allspice-krydd
Sósa:
- 2 msk. ólífuolía
- 2 msk. ósaltað smjör
- 3 msk. hveiti
- 2 bollar kjötkraftur
- ½ bolli matreiðslurjómi
- Pipar
Aðferð:
Kjötbollur:
- Setjið öll hráfefnin í stóra skál og notið hendurnar til að blanda öllu saman.
- Mótið bollur (sirka 2 msk. hver) og setjið á bökunarpappír.
- Hitið 1 msk. af olíu og 1 msk. af smjöri á pönnu á meðalhita. Setjið helminginn af kjötbollunum út á pönnuna og brúnið á öllum hliðum, sirka 8 mínútur í heildina. Setjið bollurnar til hliðar og endurtakið með restinni af olíunni, smjörinu og bollunum og leggið þær síðan til hliðar.
Sósa:
- Dreifið hveiti yfir fituna á pönnunni og skrapið fituna upp með trésleif. Hitið hveitið í 1 mínútu og bætið þá kjötkrafti út á pönnuna – pískið þar til blandan byrjar að malla.
- Setjið kjötbollurnar út á pönnuna ásamt öllum safanum sem hefur lekið á bökunarpappírinn og eldið í 10 mínútur. Leyfið þeim að malla á pönnunni þar til eldaðar í gegn og sósan hefur þykknað.
- Takið pönnuna af hitanum og bætið matreiðslurjómanum út á. Saltið og piprið eftir smekk.
- Berið fram fram með því meðlæti sem óskast.
Hér eru bollurnar bornar fram með eggjanúðlum.
mbl.is/Joe Lingeman