Ef það væri hægt að líkja eftirrétti við kynþokka, þá væri það þessi hér. Þú þarft ekki nema eina sneið til að vera fullnægð/ur og eftirbragðið mun leika um munninn. Í þessari uppskrift er hveiti algjör óþarfi svo kakan er líka glútenfrí.
Þokkalegur eftirréttur
- 2 bollar + 2 msk. ósaltaðar pistasíuhnetur, ekki í skelinni
- ¼ tsk. salt
- 2 stór egg
- ¼ bolli apríkósu-preserves
- ¾ bollar matreiðslurjómi
- 290 g dökkt súkkulaði, 70%
- ¼ tsk. sjávarsalt
Aðferð:
- Hitið ofninn í 150°C. Spreyið pay-mót, sirka 23 cm, með bökunarspreyi.
- Setjið 2 bolla af pistasíuhnetum á bökunarpappír á bökunarplötu og ristið í ofni í 8 mínútur. Látið kólna í 15 mínútur og hækkið ofninn í 180°C.
- Setjið pistasíuhneturnar í matvinnsluvél og hakkið fínt í 1 mínútu. Saltið og setjið til hliðar í skál.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið svo saman við pistasíurnar. Pressið pistasíublöndunni í botninn á pay-mótinu og bakið í um 20 mínútur. Látið alveg kólna, sirka 30 mínútur.
- Dreifið apríkósu-preserve jafnt yfir botninn. Setjið matreiðslurjómann í lítinn pott og hitið að suðu. Hellið þá yfir súkkulaðið og látið standa í 1 mínútu, hrærið samt í á meðan. Hellið því næst súkkulaðiblöndunni yfir kökuna.
- Saxið restina af pistasíuhnetunum, 2 msk., og dreifið jafnt yfir kökuna ásamt sjávarsalti.
- Setjið í kæli í 2 tíma áður en borið er fram.